Hlutir í innkaupakörfu

Innkaupakarfan er tóm

Til að bæta í hana, finndu vöruna sem þú vilt kaupa og veldu að bæta í körfu. Til að finna vöru getur þú annað hvort notað leitina eða valið eftir vöruflokkum.

0 hlutir í körfu
Skoða

Öryggi 

Innra öryggi vefsetursins

Þjónusta Netverslunar Nýherja á veraldarvefnum útheimtir, þegar það á við, viðkvæmar trúnaðarupplýsingar svo sem kennitölu og númer greiðslukorts notanda til að þjónustan virki að óskum. Til að tryggja hámarksöryggi notenda og móttekinna persónuupplýsinga fylgir vefsetrið íslenskum og alþjóðlegum lögum um viðskipti og persónuvernd ásamt viðurkenndum og/eða vottuðum starfsreglum og öryggisstöðlum. 

Þinn aðgangur

Sem skráður notandi í Netverslun Nýherja berð þú ábyrgð á trúnaði um notendaheiti, lykilorð og aðgang að þeim tölvum sem þú kannt að nota til aðgangs á vefsetrið. Við skráningu samþykkir þú að bera ábyrgð á öllum notkunartilvikum varðandi "Síðuna mína" og lykilorð.  Nýherji hf áskilur sér einhliða rétt til að hafna þjónustu, loka aðgangi, fjarlægja eða breyta innihaldi vefsetursins eða stöðva pantanir ef þurfa þykir af öryggis- eða öðrum ástæðum.

Netspjall
Sjá fleiri nýjar vörur