Öryggi
Innra öryggi vefsetursins
Þjónusta Netverslunar Nýherja á veraldarvefnum útheimtir, þegar það á við, viðkvæmar trúnaðarupplýsingar svo sem kennitölu og númer greiðslukorts notanda til að þjónustan virki að óskum. Til að tryggja hámarksöryggi notenda og móttekinna persónuupplýsinga fylgir vefsetrið íslenskum og alþjóðlegum lögum um viðskipti og persónuvernd ásamt viðurkenndum og/eða vottuðum starfsreglum og öryggisstöðlum.
Þinn aðgangur
Sem skráður notandi í Netverslun Nýherja berð þú ábyrgð á trúnaði um notendaheiti, lykilorð og aðgang að þeim tölvum sem þú kannt að nota til aðgangs á vefsetrið. Við skráningu samþykkir þú að bera ábyrgð á öllum notkunartilvikum varðandi "Síðuna mína" og lykilorð. Nýherji hf áskilur sér einhliða rétt til að hafna þjónustu, loka aðgangi, fjarlægja eða breyta innihaldi vefsetursins eða stöðva pantanir ef þurfa þykir af öryggis- eða öðrum ástæðum.