Svona færðu aðgang í netverslun.is

Sérstök síða er fyrir aðgangsumsóknir þar sem skrá þarf viðeigandi upplýsingar í 6 reiti.
Umsókn

EINSTAKLINGAR
Fyrir einstaklingsaðgang þarf að skrá persónulega kennitölu í neðsta reitinn.
Þegar viðeigandi upplýsingar hafa verið skráðar í alla reitina er smellt á hnappinn „Stofna aðgang“ og fær umsækjandi þá tölvupóst með beiðni um staðfestingu á umsókninni.
Í póstinum er textalínan „Smelltu hér til að virkja aðgang þinn“ og virkjast aðgangurinn eftir að smellt er á textann.

FYRIRTÆKI
Ef sótt er um aðgang vegna fyrirtækis þarf að skrá kennitölu fyrirtækisins í neðsta reitinn.
Að öðru leyti er fylgt sömu leiðbeiningum og að ofan. 

Allar nýskráningar stofnast með staðgreiðslukjör.
Þegar sótt er um vegna fyrirtækis er haft samband við fyrirtækið til að fá umsóknina staðfesta.