Skilmálar netverslunar Nýherja
Með því að opna og nota vefsetrið „www.netverslun.is" er litið svo á að þú hafir samþykkt eftirfarandi skilmála og skilyrði. Sért þú ekki sammála þessum skilyrðum skaltu vinsamlega ekki nota vefsetrið.
Viðskipti við netverslun Nýherja heyra undir Almenna skilmála Nýherja sem raktir eru í eftirfarandi skjali:
http://www.nyherji.is/media/efni2006/almennir_skilmalar_2007.pdf
Nánar um skilarétt og ábyrgðarmál.
Skilaréttur
Netverslun Nýherja samþykkir vöruskil í 14 daga eftir staðfestingu pöntunar að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:
- að varan sé í fullkomnu lagi, ósködduð og í söluhæfu ástandi
- að plastumbúðir (herpt, soðin, límd) og innsigli framleiðanda séu órofin
- að hugbúnaðarvara hafi ekki verið sett inn á neina tölvu
- að allar umbúðir og fylgimunir vörunnar (snúrur, leiðbeiningar osfrv) fylgi í skilunum, séu óskemmd og í söluhæfu ástandi
Lagerstarfsmenn Nýherja meta söluhæfi skilavöru. Netverslun Nýherja áskilur sér rétt til að hafna vöruskilum eða bjóða takmarkaða endurgreiðslu ef ofangreindum skilyrðum er áfátt.
Endurgreiðsla eða inneignarnóta vegna vöruskila nær aðeins til sjálfs vöruverðsins, annar kostnaður svo sem vegna flutnings til eða frá kaupanda er á ábyrgð kaupanda.
Viðgerðaþjónusta og ábyrgðarmál
Skyggnir annast viðgerðaþjónustu og ábyrgðarmál á búnaði sem keyptur hefur verið í Netverslun Nýherja.
Síminn er 516 1677 og netfangið er ver@skyggnir.is
Nánari upplýsingar um verkstæðið og þjónustuver má finna á vefsíðunum:
http://www.skyggnir.is/thjonustuvefur/verkstaedi/
http://www.skyggnir.is/thjonustuvefur/